*BLiKZiS*

..Just play. Have fun. Enjoy the Game...

05.11.2008 18:49:29 / blikzis

Prinsinn hennar Siggu

Já og fjölgunin heldur áfram Sigga og Tommi eignuðust lítinn prins þann 21. október. Við gömlu blikatútturnar óskum þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með prinsinn.

Ég stal þessari mynd af honum á síðunni hjá þeim.



kv. Gunnhildur



» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 19:34:39 / Gunnhildur

Elsku Birta og Einar til hamingju með skvísuna

Birta og Einar eignuðust litla prinsessu þann 9. ágúst síðastliðinn.

Blikatúttur óska þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með erfingjan :)


Ég stal þessari mynd af barnalandssíðunni þeirra og vona að þau fyrirgefi mér það.

Gangi ykkur vel með prinsessuna :)

Gunnhildur


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 09:54:40 / blikzis

Áskorun?

http://c5.img.v4.skyrock.com/c59/jagjess/pics/27623203.jpg

Stelpur
Ég er í íþrótta og skemmtinefnd í fyrirtækinu mínu og við erum að planleggja að halda streetball mót innan fyrirtækisins. Ég hef littla trú á því að kvennmenn hérna verði stór hluti þátttakenda og ég spurði þá sem koma að þessu hvernig þeir tækju í að ég reyndi að mæta með 1 eða fleiri kvennalið. Þeir voru hrikalega hrifnir svo að nú er spurningin bara hvort einhver ykkar myndi vilja vera með mér í 3 á þrjá móti hérna.
Best væri ef við næðum í fleiri en eitt lið til að mæta með. Áætluð dagsetning er föstudagskvöldið 6. júní og það er gert ráð fyrir einhverjum veitingum og eitthvað að móti loknu.

Og kommmaasoooooo

Nína, óð í að flengja strákana...


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 13:30:14 / blikzis

Kvöldið í kvöld?

Jæja skvísur, hvernig verður kvöldið?
Ég geri ráð fyrir að Gunnhildur sé með miðana okkar ? Húsið opnar klukkan 19:30 og borðhald hefst klukkan 20:15. Ef við ætlum að hittast fyrir þetta hjá henni Veru sætu þá væri líkast til ekki vittlaust að gera það milli 17-18 eða hvað finnst ykkur?



» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2008 05:42:53 / blikzis

Sælar túttur!

Sælar krúttin min, hvað segið þið þá ? Langaði til þess að forvitnast um hófið á laugardag ætlum við að hittast e-ð fyrir það eða bara hittast niðurfrá?
Ef þið viljið þá getum við allar komið saman heima hjá mér í Kórsölunum og farið svo saman niðureftir, hver veit nema maður lumi þá á einhverju nammi úr fríhöfninni..;) 
Eða hvað segið þið hvernig viljið þið hafa þetta?

Hlakka til að sjá ykkur!!!!!

Vera 

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2008 12:15:21 / Gunnhildur

Frábært lokahóf

Sælar stúlkur

Ég ætlaði bara að þakka ykkur fyrir frábært kvöld á laugardaginn. Það er alltaf gaman þegar svona margir skemmtilegir blikar hittast.

Takk fyrir frábæra skemmtun :)

En hvað segið þið ætlum við að skella okkur á KKÍ lokahófið eða??? Styttist í það :)Hvernig er stemmarinn fyrir því?


kv. Gunnhildur 

» 22 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 11:59:00 / Gunnhildur

Plan B

Þar sem lokahófið var blásið af höfum við (ég, Siggi 1. flokk og Loftur og Trausti mfl. kk.) sett á laggirnar okkar eigið lokahóf :)

Strákarnir ætla að grilla og við mætum með dúka og eitthvað svoleis.

Kostar í kring um 1500 kall á mann (gæti bæst aðeins ofan á það) og hver og einn kemur með eigin drkkjarföng.

Fjölmennum nú og skemmtum okkur frábærlega :)

Hverjar ætla að mæta??

Sendið mér sms A.S.A.P.

Koma svooooo Gunnhildur


» 8 hafa sagt sína skoðun

18.04.2008 11:06:00 / Gunnhildur

Lokahófinu frestað

Ég fékk eftirfarandi póst frá Pétri:

Sæl,

Ekkert verður af lokahófi deildarinnar sem vera átti á laugardaginn vegna slakrar mætingar,

Við munum halda hófið síðar. Vinsamlega láttu stúlkurnar vita.


Eigum við að hafa okkar eigið lokahóf með strákunum eða hvað viljið þið gera ??? Það verður þá bara eitthver ódýr matur og hver kemur með sitt.

Hvað segið þið ?????


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 08:40:44 / blikzis

Lokhóf...

Ég vildi bara láta vita að ég tékkaði aftur og ég tók bara fjórar klósettpappír hehe....þannig að ef þið voruð ekki búnar að finna út úr þessu þá er spurning hvort að sendingin hafi ekki bara verið vitlaus??

Annað sem ég var að spá er hvort einhverjar ætli að fara á hið árlega lokahóf körfuknattleiksdeildarinnar?
Ég sá auglýsingu fyrir þessu niðrí smára og það kostar 3900 krónur.....sem er 1400 krónum hærra heldur en í fyrra...takk fyrir túkall (eins og Svali Björgvins myndi segja). Það er greinilegt að gengi krónunar hefur áhrif á margt :S
En ég ætlaði bara svona að kanna stemmninguna fyrir þessu.....endilega kommentið


Birta

» 14 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 10:07:53 / Gunnhildur

Eldhúsrúllurnar og skeinirinn eru að koma

Pappírinn á að koma á  miðvikudagskvöldið og það væri gott ef þið gætuð skilað mér peningnum í umslagi merkt ykkur. Helst fyrir föstudaginn. Ég skila því svo til Péturs eða Guðmundar.


Passar þetta ekki svona?

Birta 4 wc (10.000 kr.)

Kata 3 wc og 3 eldhús (15.000 kr.)

Alex 3 wc og 2 eldhús (12.500 kr.)

Gunnhildur 3 wc og 2 eldhús (12.500 kr.)

Nína ætlaði að borga það sem við hefðum fengið í gróða þannig að hún skilar bara 5000 kr. 

Koma svo ....

 

» 9 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 12:59:59 / Gunnhildur

Skallagrímur-Breiðablik

Sælar blikatúttur nær og fjær og aðrir dyggir lesendur síðunnar :)

Þar sem meiðslalisti liðsins er orðinn nokkuð þéttskipaður og ekki hefur verið hægt að fá aukaleikmenn liðsins (þær sem ekki eru að æfa en eru skráðar í Breiðablik) til þess að spila leikinn á föstudaginn þá höfum við í samráði við stjórn Körfuknattleiksdeildar Breiðabliks ákveðið að gefa leikinn á móti Skallagrím.


Þetta þykir  okkur auðvitað mjög leiðinlegt en þegar aðeins þrír leikmenn liðsins eru heilir þá er ekkert annað í stöðunni.


Áfram Breiðablik 

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 14:48:44 / Gunnhildur

Síðasta vikan í boltanum :)

Jæja stelpur þá er komið að síðustu vikunni hjá okkur í boltanum.

Það verða æfingar á miðvikudaginn og fimmtudaginn og svo eigum við síðasta leikinn okkar á föstudagskvöldið við Skallagrím.

Allar að mæta á þessar tvær síðustu æfingar og svo verðum við að taka Sköllóttu skvísurnar ;)

sjáumst hressar

Gunnhildur

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 10:37:47 / blikzis

:)

Langaði bara að þakka Gunnhildi og meistarkokknum Eggerti fyrir frábæra veislu á laugardagskvöldið :)
Hefði ekki verið betra þótt við hefðum farið á fínasta veitinghús borgarinnar....
Vona að restin af ykkur hafi skemmt sér vel það sem eftir lifði kvölds og nætur :lol:

Takk fyrir mig

Birta

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 15:36:09 / blikzis

Það vantar í utandeildina í kvöld


Hver ætlar að koma og vera með mér??


Fullt af sætum sveittum bumbum á staðnum.

koma svo stelpur ég get ekki verið ein á borðinu.......

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 12:40:16 / blikzis

Utandeild á föstudaginn


Jæja það er einn leikur í utandeildinni á föstudaginn og hefst hann kl. 19:15.+

Ég mun vera á leiknum en hver ætlar að koma og vera með mér þarna og dást að þessum fögru karlmönnum sem þarna munu svitna.

kv. Gunnhildur

» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 35
Lítil krútt